3 dagar í fyrsta leik | Hvaðan koma allir?

Fótbolti

Nú eru aðeins 4 dagar í að KA hefji leik í Bestu deild karla ! Fyrsti leikur KA er á heimavelli gegn KR þann 10. apríl næstkomandi.

Hér á heimasíðu KA ætlum við að hafa niðurtalningu með allskonar skemmtiefni þangað til að fyrsti leikur hefst. Við ætlum að rifja upp gamalt efni, ásamt því að kynnast liðinu okkar fyrir komandi sumar og rýna í hvað sérfræðingarnir hafa að segja um KA!

KA er með stóran og breiðan leikmannahóp fyrir átökin í sumar. Algengt umræðuefni í íþróttaheiminum, sérstaklega í liðsíþróttum er að spá í uppruna leikmanna og hvaðan þeir eru og hvar þeir ólust upp! 

Hjá KA fyrir komandi sumar er staðan svona:

Ívar Arnbro Þórhallsson - uppalinn KA strákur, fæddur 2006
Birgir Baldvinsson - uppalinn KA strákur, fæddur 2001
Dusan Brkovic - frá Serbíu, gekk til liðs við KA 2021
Rodrigo M Gomes - frá Spáni, spilaði áður í Sindra og Grindavík, fæddur 1989, kom til KA 2020
Ívar Örn Árnason - uppalinn KA strákur, fæddur 1995
Daníel Hafsteinsson - uppalinn KA strákur, fæddur 1999
Pætur Petersen - frá Færeyjum, kom til KA 2023, fæddur 1998
Elfar Árni Aðalsteinsson - frá Húsavík, kom til KA árið 2015, fæddur 1990
Hallgrímur Mar Steingrímsson - frá Húsavík, kom til KA árið 2009, fæddur 1990
Ásgeir Sigurgeirsson - frá Húsavík, kom til KA árið 2016, fæddur 1996
Kristijan Jajalo - frá Bosníu, kom til KA 2019, spilaði áður í Grindavik, fæddur 1993
Steinþór Már Auðunsson - uppalinn KA strákur, fæddur 1990
Andri Stefánsson - uppalinn KA strákur, fæddur 1991
Kristofer Paulsen - frá Noregi, kom til KA árið 2023, fæddur 2004
Hákon Aðalsteinsson - uppalinn KA strákur, fæddur 2004
Mikael Breki - uppalinn KA strákur, fæddur 2006
Hrannar B. Steingrímsson - frá Húsavík, kom til KA árið 2014, fæddur 1992
Steinþór Freyr Þorsteinsson - frá Kópavogi, kom til KA árið 2016, fæddur 1986
Jóhann Mikael - uppalinn KA strákur, fæddur 2006
Björgvin Máni Bjarnason - uppalinn KA strákur, fæddur 2004
Ingimar Stole - Íslenskur strákur kemur frá Viking í Noregi, fæddur 2004, gekk til liðs við KA 2023
Þorri Mar Þórisson - frá Dalvík, kom til KA 2019, fæddur 1999
Jakob Snær Árnason - Frá Siglufirði, kom til KA 2021, fæddur 1997
Sveinn Margeir Hauksson - Frá Dalvík en spilaði yngriflokkana að stórum hluta með KA, fæddur 2005
Þorvaldur Daði Jónsson - Uppalinn KA strákur, fæddur 2002
Kári Gautason - Uppalinn KA strákur, fæddur 2003
Harley Willard - Frá Englandi, kom til KA 2023, áður spilað með Þór og Víking Ó, fæddur  1997
Dagbjartur Búi Davíðsson - Uppalinn KA strákur, fæddur 2006
Valdimar Logi Sævarsson - Uppalinn KA strákur, fæddur 2006
Bjarni Aðalsteinsson - Uppalinn KA strákur, fæddur 1999

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is