** Við erum komin í jólafrí frá afmælum, byrjum aftur sunnudaginn 18.janúar 2026 **
Við hjá FIMKA bjóðum foreldrum að halda afmælisveislur fyrir börn í fimleikasalnum hjá okkur.
Fyrirkomulagið er þannig að afmælisveisla hefst á klukkutíma fresti og varir í eina klst. og 45 mínútur í senn. Klukkutími inn í fimleikjasal og 45 mínútur fyrir framan salinn í aðalrými hússins til að vera með kökur/pizzur. Boðið verður upp á þetta á sunnudögum milli kl 11:00-16:00
(síðasta afmæli endar kl. 17:45).
- Ekki er boðið upp á borðbúnað (glös,diska,sérvettur,ruslapoka) og því mikilvægt að hafa það með sér.
- Allur pappi (pizza kassar) þarf að taka með sér að afmæli loknu og fara með í næsta grendargám ( t.d. Krambúðin v.Borgarbraut )
- Bannað er að hafa með sér bretti og slíkan búnað í afmælin.
Leiga á salnum kostar 22.500 kr - Staðfestingargjald er 5000 kr sem þarf að greiða við bókun á salnum og senda staðfestingu á afmaeli@fimak.is - ef staðfestingargjald er ekki greitt samdægurs og bókun er gerð þá er öðrum boðinn tíminn!
17.500 kr þarf að vera greiddur að morgni miðvikudags í þeirri viku sem afmælið er bókað eða samið um greiðslufyrirkomulag,
ef greiðsla hefur ekki borist er öðrum boðinn salurinn til leigu.
Ef salur er afbókaður með minna en viku fyrirvara þá er staðfestingargjald EKKI endurgreitt !
Rknr. 0162-26-26491 kt, 550992-2649 og sendið staðfestingu á afmaeli@fimak.is með dagsetningu afmælis og tíma !!
EKKI er hægt að bóka afmæli í gegnum síðuna heldur er þetta aðeins ósk um tíma og dagsetningu, skrifstofustjóri fær póst um tíma sem óskað er eftir og athugar hvort það sé laust og svarar ykkur. Einnig er hægt er að óska eftir að panta með því að senda póst á afmaeli@fimak.is, merkt afmæli.
Mikil eftirspurn er eftir að halda afmælisveislur í salnum og því hvetjum við fólk að panta tímanlega.
** ATH : Það getur komið upp sú staða að afbóka þurfi bókuð afmæli með stuttum fyrirvara vegna aðstæðna sem við ráðum ekki við, þá er boðið upp á að finna nýjan tíma eða fá endurgreitt **
Með von um að þið eigið eftirminnilega afmælisveislu.
Starfsfólk Fim.KA
