Eirini Fytrou lýkur alþjóðlegu þjálfaranámi í júdó fyrir ungmenni með þroskahömlun
13.07.2026
Eirini Fytrou, þjálfari hjá Júdódeild KA, hefur lokið alþjóðlegu þjálfaranámi í júdó fyrir ungmenni með þroskahömlun og hlotið formlega viðurkenningu frá Blanquerna-háskóla í Barcelona. Námið var hluti af evrópska samstarfsverkefninu Judo Intellectual Disability Project (JIDP), sem styrkt er af Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins.
Námið stóð yfir í eitt og hálft ár og fól í sér netnám ásamt tveimur alþjóðlegum staðnámskeiðum, í Madríd 2025 og Poznan í Póllandi í júní síðastliðnum. Á lokaviðburðinum í Poznan komu saman yfir 60 þjálfarar og sérfræðingar frá 15 löndum, þar sem Eirini var í hópi fjögurra íslenskra þátttakenda.