Æfingagjöld

Skráning iðkenda og greiðsla æfingagjalda fer öll í gegnum félagakerfi Sportabler. Tilkynning er send þegar æfingagjöld eru komin inn.

Skilyrði er að gengið sé frá greiðslu æfingagjalda í upphafi tímabils. Allir iðkendur eru sjálkrafa skráðir áfram. Kjósi iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast með tölvupósti á netfangið skrifstofa@fimak.is. Ef úrsögn berst ekki skrifstofu skriflega með tölvupósti verða æfingagjöld innheimt sem nema gjaldi fyrir einum mánuði. Það er á ábyrgð forráðamanna að tilkynna úrsögn, tilkynning til þjálfara iðkendans verður ekki tekin gild.

Allar skráningar í þá hópa sem laust er í er opnað á í gegnum sportabler, aðrir hópar sem ekki eru að finna þar er best að hafa samaband við skrifstofu fimleikar@ka.is

Ef nota á Frístundastyrk sveitarfélags sem greiðslu fyrir námskeið þarf að merkja við það sérstaklega á greiðslusíðunni. Þá birtist lína og hægt er að haka við “Nota Frístundastyrk – nafn sveitarfélags“og þá færist inn upphæð styrks sem viðkomandi iðkanda á rétt á , í sumum tilvikum geta foreldrar/forráðamenn breytt upphæð og ráðstafað upphæð að eigin vali.

Hægt er að velja um tvennskonar greiðslumáta í fellistiku, kreditkort og greiðsluseðla og skipta gjaldinu í allt að 4 mánaðarlegar greiðslur (fjöldi skipta er háð heildarupphæð). Umbeðnir greiðsluseðlar birtast í netbanka viðkomandi forrráðamanns. Fyrir hvern útgefin greiðsluseðil innheimtist sérstakt seðilgjald kr. 390. Allar greiðslur fara um kerfi kreditkortafyrirtækja á öruggum síðum, FIM.KA geymir engar slíkar upplýsingar. Ef þið lendið í vandræðum, eða hafið fyrirspurnir um skráningu þá vinsamlegast hafið samband; fimleikar@ka.is.

Þegar valið hefur verið greiðslumáti og viðeigandi upplýsingar settar inn er mikilvægt að kynna sér og haka við í kjölfarið „Samþykki skilmála” og samþykkja með greiðslu.

Frestur til að ganga frá æfingagjöldum í Sportabler er til  22.ágúst á haustönn og 20. janúar á vorönn. Eftir það áskilur FIM.KA sér rétt til að setja æfingargjöldin á þrjá greiðsluseðla og bætist þá við seðilgjöld og/eða annar umsýslukostnaður ef bakfæra þarf reikning.
Komi til að senda þurfi æfingagjöld út þá er ekki hægt að nota frístundastyrk.

Ef iðkandi flytur sig yfir í annan hóp áskilur FIM.KA sér að senda rukkun ef æfingagjöld þess hóps eru hærri. Ef iðkandi fer í hóp með lægri æfingagjöld fær iðkandi inneign hjá FIM.KS sem hægt er að nota á næsta tímabili. Ef iðkandi hættir verður inneign greidd út.

Æfingagjald miðast við þann æfingatímafjölda sem hópur viðkomandi iðkanda æfir á viku.Ef árekstur er í æfingatöflu við aðrar íþróttagreinar eða tómstundir er hægt að senda póst á fimleikar@ka.is og fim.formadur@ka.is og skoðað er hvert tilfelli með þjálfara hóps hvort það gangi upp og hægt sé að koma til móts við viðkomandi með niðurfellingu æfingargjaldi við samræmingu á æfingartíma í viku.

- Mótagjöld og kostnaður vegna keppnis-og æfingaferða eru ekki innifalin í æfingagjaldi.
Ef iðkandi er búin að skrá sig á mót og greiða mótagjald FSÍ og hætti svo við þá er mótgjald ekki endurgreitt.

Tryggingar: Vakin er athygli á því að iðkendur eru ekki tryggðir hjá deildinni við æfingar eða keppni fyrir hönd Fimleikadeildar KA. Við bendum forráðamönnum á að kanna heimilistryggingar sínar því í flestum tilfellum eru iðkendur tryggðir þar.

Æfingagjöld eru ekki endurgreidd ef iðkandi hættir eftir að einn mánuður eru liðinn af önninni. Iðkandi sem æfir fjórar vikur eða skemur greiðir sem nemur gjaldi fyrir einn mánuð. Hægt er að sækja um undanþágu frá þessu ef um búferlaflutning, alvarleg veikindi, slys eða langvarandi meiðsl er að ræða. Iðkendur eru vinsamlegast beðnir að skila inn læknisvottorði vegna langvarandi meiðsla.

Verðskrá Haustönn 2025

Birt með fyrirvara um breytingar og innsláttarvillur.

Æfingahópur Vikufjöldi Æfingagjald
Mfl. Á kk. 20 186.300 kr
Mfl. Á kvk. 20 172.600 kr
Á1 kk. 20 172.400 kr
Á1 kvk 20 160.300 kr
Á2 kvk/kk 20 150.600 kr
Á3 kvk/kk 17 101.800 kr
Á4 kvk/kk 17 89.900 kr
Á5 kvk 17 79.200 kr
H1 20 163.650 kr
H2 20 152.700 kr
H3 20 143.500 kr
H4 17 116.500 kr
H5 17 83.100 kr
G1 17 79.200 kr
G2a/b 17 67.500 kr
G3 17 79.200 kr
Fullorðins 18+ 17 86.700 kr
Trampólín 17 78.700 kr
Krílahóp S4 2019.árg 15 32.800 kr
Krílahóp S1,S2,S3
2022.2021.2020 árg
15 28.100 kr

 

  • Leyfisgjald FSÍ. Breytingar voru gerðar vorið 2016 og leyfisgjald sett á með lagabreytingum á Fimleikaþingi. Leyfisgjöldum er skipt í gull, silfur, brons og kopar og eru mishá eftir því hvar iðkandi er staddur í Íþróttinni.

Afsláttur

Systkinaafsláttur er 10% sem reiknast á meðaltal heildaræfingargjalds systkina. Systkinaafsláttur gildir bara á systkinum innan fimleikadeilarinnar.
Dæmi barn 1 – námskeið kostar 50.000kr barn 2 – námskeið kostar 40.000kr. Meðaltalið er 45.000kr og reiknar afslátturinn af þeirri upphæð. Afslátturinn reiknast sjálfkrafa við skráningu en afslátturinn kemur fram við greiðslu á öllum iðkendum eftir þann fyrsta. Þegar greitt er fyrir fyrsta barn reiknast enginn afsláttur en þegar greitt er fyrir næsta reiknast afslátturinn á meðaltal æfingagjalda barns eitt og tvö.
Sex vikum eftir að önnin hefst dettur systkinaafslátturinn út úr kerfinu.
Ekki er reiknaður systkinafsláttur af leyfisgjöldunum.