KA Íslandsmeistari í blaki karla 2023!

Blak
KA Íslandsmeistari í blaki karla 2023!
Stórkostleg afrek hjá strákunum! (mynd: EBF)

KA gerði sér lítið fyrir og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla í kvöld með 3-1 sigri á liði Hamars en með sigrinum tryggðu strákarnir sér sigur í úrslitaeinvíginu samanlagt 3-1. KA vann þar með sinn sjöunda Íslandsmeistaratitil í blaki karla og þann fyrsta frá árinu 2019.

Hamar voru ríkjandi Íslandsmeistarar en titillinn í kvöld er sá fyrsti sem lið Hamars missir af frá því að liðið kom af krafti inn á Íslandsmótið fyrir þremur árum. Afrekið er því ansi magnað hjá strákunum og var stemningin í KA-Heimilinu algjörlega frábær.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum

Egill Bjarni Friðjónsson ljósmyndari var á svæðinu og býður hér til heljarinnar myndaveislu frá leiknum sem og sigurgleðinni í leikslok. Kunnum honum bestu þakkir fyrir framtakið!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is