Stefna býður frítt á stórleik strákanna!

Blak

KA tekur á móti Hamri í fjórða leik liðanna í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla kl. 19:00 í KA-Heimilinu í kvöld. KA leiðir einvígið 2-1 og tryggir sér titilinn með sigri í kvöld og alveg ljóst að við þurfum að troðfylla stúkuna og tryggja að strákarnir landi titlinum!

Stefna býður öllum frítt á leikinn og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það magnaða framtak. Leikurinn hefst eins og áður segir klukkan 19:00 en leikir liðanna hafa verið æsispennandi og ljóst að við þurfum öll að leggjast á eitt til að tryggja að titillinn vinnist í kvöld.

Ef þið komist ómögulega á leikinn er hann í beinni á KA-TV, einnig í boði Stefnu og er hægt að nálgast útsendinguna hér fyrir neðan, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is