Sumaræfingar handboltans, skráning hafin

Handbolti
Sumaræfingar handboltans, skráning hafin
Góðir leikmenn verða til á sumrin!

Handknattleiksdeild KA verður með sumaræfingar fyrir metnaðarfulla og öfluga krakka í 5.-7. flokk í sumar. Æfingarnar eru samstarfsverkefni unglingaráðs og meistaraflokka KA og KA/Þórs en leikmenn meistaraflokka munu aðstoða við æfingarnar og miðla af sinni reynslu og þekkingu til iðkenda.

Æfingarnar hefjast 7. júní næstkomandi og standa til 30. júní en allar upplýsingar og skráning fer fram í gegnum Sportabler. Yfirumsjón með æfingunum fara þeir Jónatan Magnússon (jonni@ka.is) og Stefán Árnason (stefanarna@gmail.com).

Smelltu hér til að sjá sumaræfingarnar á Sportabler

7. flokkur (fædd 2012-2013) æfa tvisvar í viku og kosta æfingarnar 5.000 krónur.

6. flokkur (fædd 2010-2011) æfa þrisvar í viku og kosta æfingarnar 9.000 krónur.

5. flokkur (fædd 2008-2009) æfa þrisvar í viku og kosta æfingarnar 12.000 krónur.

  mán þri mið fim
7. fl. KK 14:30-15:30   14:30-15:30  
7. fl. KVK   14:30-15:30   14:30-15:30
6. fl. KK 13:15-14:15 13:15-14:15 13:15-14:15  
6. fl. KVK   14:30-15:30 13:15-14:15 14:30-15:30
5. fl. KK 16:30-17:30 16:30-17:30 17:30-18:30  
5. fl. KVK 17:30-18:30   16:30-17:30 16:30-17:30


Athugið að tímasetningar á æfingunum geta orðið eitthvað breytilegar en allar upplýsingar verða gefnar út tímanlega í Sportabler.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is