Ný stjórn Blakdeildar KA

Blak

Aðalfundur Blakdeildar KA var haldin 7. maí síðastliðinn. Nýr formaður var kosinn á fundinum Sigurður Arnar Ólafsson en Hjörtur Halldórsson sem áður var formaður deildarinnar lét af embætti. Hjörtur mun þó  áfram sitja í stjórn deildarinnar. Sigurður Arnar hefur lengi setið í stjórn Blakdeildar KA og er þar flestum hnútum kunnugur. Hann hefur m.a. stýrt yngriflokkamálum deildarinnar í áraraðir.

Töluverðar breytingar urðu á stjórninni en Arnar Jóhannesson og Kristján Hreinsson hættu í stjórninni. Blakdeild KA þakkar þeim báðum fórnfúst starf og vel unnin störf í þágu deildarinnar á liðnum árum.

Nýir stjórnarmenn eru Fanney Valdsdóttir sem lengi hefur starfað í yngriflokkaráði Blakdeildar KA og einnig komu inn tveir varamenn í stjórn. Þær Harpa Ævarsdóttir sem verður formaður yngriflokkaráðs og Una Heimisdóttir sem verður m.a. sérlegur tengiliður meistaraflokks kvenna og fulltrúi ungliða í stjórninni.

Gunnar Garðarsson og Guðríður Friðriksdóttir gáfu áfram kost á sér í stjórn blakdeildarinnar.

Stjórn Blakdeildar KA:

Formaður:  Sig. Arnar Ólafsson

Meðstjórnandi: Fanney Valsdóttir

Meðstjórnandi:Gunnar Garðarsson

Meðstjórnandi: Guðríður Friðriksd.

Meðstjórnandi: Hjörtur Halldórsson

Varamaður og formaður yngriflokkanefndar: Harpa Ævarsdóttir

Varamaður: Una Heimisdóttir fulltrúi ungliða og m.fl. kvenna




Stjórnin mun hittast á næstu dögum og skipta með sér verkum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is