Jafnréttisáætlun KA

Jafnréttisáætlun íþróttafélagsins byggir á lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og tekur einnig mið af lögum nr. 85/2018 um jafna meðferð utan vinnumarkaðar. Jafnréttisáætlunin er jafnframt byggð á vinnu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Jafnréttisstofu um gerð jafnréttisáætlana fyrir íþróttafélög og leiðbeiningar þess efnis.

 

Iðkendur

Æfingatímar og aðstaða

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi

Iðkendur á sama aldri í sömu íþróttagrein fái óháð kyni jafn marga og sambærilega æfingatíma.

Aðstaða og aðbúnaður mismuni ekki iðkendum eftir kyni.

Úttekt á æfingatíma kynja í sömu íþróttagrein og á sama aldri.

Úttekt á aðbúnaði og aðstöðu kynja í sömu grein og á sama aldri.

Leiðrétta kynbundinn mun ef er.

Stjórn eða framkvæmdastjóri. Árlega

 

Fjárveitingar og fjáraflanir

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi

Samræmi sé tryggt í fjárveitingum til íþróttagreina óháð kyni iðkenda.

Möguleikar til fjáraflana í nafni félagsins séu jafnir óháð kyni iðkenda.

Úttekt á því hvernig fjármagni er skipt milli íþróttagreina eftir kynjum.

Haldið er kynjabókhald utan um fjáraflanir í nafni félagsins.

Leiðrétta kynbundinn mun ef er.

Stjórn eða framkvæmdastjóri. Árlega

 

 Fjölbreytni og unnið gegn fordómum

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi

Íþróttafélagið þjóni fjölbreyttum hópi iðkenda. Jafna kynjahlutföll í greinum þar sem því er viðkomið.

Unnið sé gegn staðalímyndum og fordómum.

Kortlagning á iðkendahóp í greinum (ef við á) eftir kynjum og aldri. Staðan og viðbrögð tekin til umræðu á æðsta vettvangi eftir því sem við á.

Fræðsla um staðalímyndir og fordóma fyrir þjálfara, stjórn og starfsfólk. Skýrir verkferlar um hvernig tekið sé á fordómum.

Leiðrétta kynbundinn mun ef er.

Stjórn eða framkvæmdastjóri. Árlega

 

Kynningarmál og viðurkenningar

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi

Iðkendum er ekki mismunað eftir kyni eða vegna annarra mismununarástæðna í fréttum eða kynningarefni sem félagið sendir frá sér.

Viðurkenningar eru veittar án kynbundinnar mismununar.

Verðlaun eru sambærileg fyrir öll kyn í sömu greinum.

Úttekt á fréttum og öðru efni sem félagið sendir frá sér m.t.t. kyns.

Haldið er kynjabókhald utan um veittar tilnefningar og viðurkenningar.

Haldið er kynjabókhald utan um veitt verðlaun.

Leiðrétta kynbundinn mun ef er.

Stjórn eða framkvæmdastjóri. Árlega

 

Forvarnir og fræðsla

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi

Unnið er gegn kynbundnu ofbeldi, kynbundinni áreitni og kynferðislegri áreitni innan félagsins.

Samstarfsaðilar þekki stefnu félagsins í jafnréttismálum.

Fræðsla um jafnrétti kynjanna fyrir þjálfara, stjórn og starfsfólk félagsins.

Úttekt á menntun, launum og launakjörum þjálfara m.t.t. kyns.

Leiðrétta kynbundinn mun ef er.

Stjórn eða framkvæmdastjóri. Á tveggja ára fresti

 

Þjálfarar

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi

Þjálfarar eru vel menntaðir og vel að sér um jafnrétti kynjanna.

Þjálfarar njóta sömu launa og kjara fyrir sömu eða sambærileg störf og hafa sömu tækifæri til að afla sér þekkingar.

Fræðsla um jafnrétti kynjanna fyrir þjálfara, stjórn og starfsfólk félagsins.

Úttekt á menntun, launum og launakjörum þjálfara m.t.t. kyns.

Leiðrétta kynbundinn mun ef er.

Stjórn eða framkvæmdastjóri. Árlega

 

Nefndir og ráð

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi

Kynjahlutfalls er gætt í nefndum, ráðum og stjórnum félagsins. Hlutfall kvenna og karla sé sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða.

Öll kyn hafa tækifæri til að koma fram fyrir hönd félagsins.

Úttekt á nefndum, ráðum og stjórnum félagsins m.t.t. kyns.

Úttekt á hverjir koma fram fyrir hönd félagsins m.t.t. kyns.

Leiðrétta kynbundinn mun ef er.

Stjórn félagsins. Árlega

 

Eftirfylgni/endurskoðun

Jafnréttisáætlunin nær yfir allt starf félagsins, hún er lifandi plagg sem tekur breytingum þegar þurfa þykir. Árlega fer stjórn félagsins yfir jafnréttisáætlunina og metur árangur verkefna. Hvað gerum við vel? Hvað getum við gert betur? 

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi
Jafnréttisáætlunin sé virk í öllu starfi félagsins. Áætlunin og árangur verkefna kynnt innan félagsins og birt á heimasíðu. Stjórn Árlega
Jafnréttisáætlunin er í sífelldri þróun. Fara yfir jafnréttisáætlunina og uppfæra m.t.t. árangurs og reynslu.    
Jafnréttisáætlunin er endurskoðuð á fjögurra ára fresti Tillaga að nýrri jafnréttisáætlun lögð fram byggð á fyrri reynslu.   Fjórða hvert ár
  Ný jafnréttisáætlun til næstu fjögurra ára samþykkt og tekur gildi.    

 

 

Samþykkt af aðalstjórn KA 23.06.2026