KA vs Connah's Quay Nomads

Almennt
KA vs Connah's Quay Nomads
Ţorvaldur Makan fagnar marki sínu

Leikur KA viđ Connah’s Quay Nomads er ţriđja einvígi KA í Evrópu.  Fyrsta viđureign KA voru leikir á móti CSKA Sofia frá Búlgaríu en KA gerđi sér lítiđ fyrir og vann heimaleikinn 1-0.  Mark okkar manna skorađi Hafsteinn Jakobsson eftir frábćra sending frá Ormarri Örlygssyni.  KA var mun sterkari ađilinn í fyrri leik liđanna og átti Jón Grétar Jónsson m.a. skot í slá og Kjartan Einarsson fékk góđ fćri.  Í seinni leik liđanna ţá sýndu búlgörsku meistararnir styrk sinn og unnu 3-0 sigur eftir ađ stađan hafđi veriđ 1-0 í hálfleik.

Liđ KA í seinni leiknum í Búlgaríu:

Haukur Bragason, Halldór Halldórsson, Halldór Kristinsson, Steingrímur Birgisson, Bjarni Jónsson, Ormarr Örlygsson, Hafsteinn Jakobsson, Gauti Laxdal, Heimir Guđjónsson, Jón Grétar Jónsson (Örn Viđar Arnarson 82.), Kjartan Einarsson (Árni Hermannsson 65.)

Seinna einvígi KA var á móti FK Sloboda Tusla frá Bosníu.  Fyrri leikurinn var spilađur í Bosníu og endađi leikurinn međ 1-1 jafntefli ţar sem Hreinn Hringsson skorađi mark okkar manna eftir sendingu frá Steina Eiđs.  Seinni leikurinn var spilađur á heimavelli og endađi líka međ 1-1 jafntefli ţar sem Ţorvaldur Makan skorađi međ föstu skoti fyrir utan teig.  Leikurinn fór ţví í framlengingu ţar sem KA var heldur sterkari ađilinn en ekkert mark var skorađ.  Ţví ţurfti ađ grípa til vítaspyrnukeppni og fór ţađ svo ađ okkar menn urđu ađ lúta í gras 3-2 í vítaspyrnukeppninni.

 Liđ KA í seinni leiknum heima á Akureyri:

Sören Byskov, Jón Örvar Eiríksson (Hreinn Hringsson 55.), Ţorvaldur Sveinn Guđbjörnsson, Dean Edward Martin, Slobodan Milisic, Ţorvaldur Örlygsson, Steinn Viđar Gunnarsson, Steinar Sande Tenden (Elmar Dan Sigţórsson 55.), Ţorvaldur Makan Sigbjörnsson, Pálmi Rafn Pálmason (Steingrímur Örn Eiđsson 91.), Ronni Hartvig

Nú er komiđ ađ nćsta einvígi okkar í Evrópu og vonumst viđ til ađ sjá sem flesta stuđningsmenn á heimavelli Fram á fimmtudaginn til ţess ađ styđja strákana og hjálpa ţeim áfram í nćstu umferđ.  Miđasala er í gegnum Stubb https://stubb.is/events/yzMX7n


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband