KA-varp

KA fótboltasumarið 2018

KA festi sig í sessi sem Pepsideildar lið er liðið endaði í 7. sæti deildarinnar sumarið 2018. Þetta var annað tímabil félagsins í efstu deild eftir að hafa áður leikið 12 ár í næst efstu deild. Hér má sjá öll mörk liðsins í deild og bikar þetta sumarið en Ásgeir Sigurgeirsson var markahæsti leikmaður liðsins með 10 mörk. Myndefni: Stöð 2 Sport Klipping: Ágúst Stefánsson Tónlist: Move Along - All American Rejects

Thumbnail
  • KA fótboltasumarið 2019
  • KA náði sínum besta árangri frá árinu 2002 þegar liðið endaði í 5. sæti Pepsi Max deildarinnar sumarið 2019. Hér má sjá öll mörk liðsins í deild og bikar þetta sumarið en Hallgrímur Mar Steingrímsson var markahæsti leikmaður liðsins með 14 mörk og Elfar Árni Aðalsteinsson gerði 13.

Thumbnail
  • Þór - KA 0-3 (24. september 2016), mörkin
  • KA mætti á Þórsvöll í lokaumferð Inkasso deildarinnar þann 24. september 2016. Fyrir leikinn hafði KA tryggt sér sigur í deildinni en Þórsarar höfðu misst af tækifærinu á að komast í deild þeirra bestu, það var því aðeins bæjarstoltið undir í leiknum.

    Strax frá upphafi voru KA-menn betri aðilinn hvort sem það var á vellinum eða í stúkunni og strax á 4. mínútu skoraði Almarr Ormarsson fyrsta markið fyrir KA. Skömmu síðar eða á 11. mínútu tvöfaldaði Juraj Grizelj forystuna í 2-0 með laglegu marki.

    Það var svo bara tímaspursmál hvenær þriðja markið myndi koma og það kom loksins á 86. mínútu þegar Bjarki Þór Viðarsson kom boltanum í netið og öruggur 0-3 sigur staðreynd annað árið í röð á Þórsvelli!

    Leikurinn var sýndur beint á Stöð 2 Sport í lýsingu Henry Birgis Gunnarssonar.

Thumbnail
  • KA - Leiknir F. 4-0 (11. ágúst 2016), mörkin
  • KA vann magnaðan 4-0 sigur á Leikni frá Fáskrúðsfirði á Akureyrarvelli þann 11. ágúst 2016 í 15. umferð Inkasso deildarinnar.

    1 – 0 Aleksandar Trninic (’45) Stoðsending: Elfar
    2 – 0 Elfar Árni Aðalsteinsson (’59) Stoðsending: Juraj
    3 – 0 Aleksandar Trninic (’71) Stoðsending: Grímsi
    4 – 0 Ólafur Aron Pétursson (’91) Stoðsending: Bjarki

Thumbnail
  • KA - Þór 1-0 (16. júlí 2016)
  • KA tók á móti nágrönnum sínum í Þór í 11. umferð Inkasso deildarinnar á Akureyrarvelli þann 16. júlí 2016. Elfar Árni Aðalsteinsson gerði eina mark leiksins þegar hann skallaði fyrirgjöf frá Hallgrími Mar Steingrímssyni í netið á 51. mínútu leiksins.

    Með sigrinum kom KA sér í enn betri stöðu á toppi deildarinnar og er með 5 stiga forskot þegar deildin er hálfnuð.

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband