Deildarmeistaratitillinn í húfi á laugardag!

Blak
Deildarmeistaratitillinn í húfi á laugardag!
Stelpurnar ætla sér Deildarmeistaratitilinn!

KA og Álftanes mætast í hreinum úrslitaleik um Deildarmeistaratitilinn í blaki kvenna í KA-Heimilinu á laugardaginn klukkan 13:00. Leikurinn er síðasti leikur liðanna í deildarkeppninni og eru þau jöfn að stigum fyrir leikinn og því ljóst að það lið sem fer með sigur af hólmi verður Deildarmeistari.

Bæði lið hafa átt frábært tímabil og í raun algjör draumur að fá hreinan úrslitaleik milli liðanna um Deildarmeistaratitilinn. KA hampaði Bikarmeistaratitlinum á dögunum en KA sló einmitt Álftanes úr leik í 8-liða úrslitum Kjörísbikarsins og verður afar spennandi að sjá hvort liðanna hefur betur á laugardaginn.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta í KA-Heimilið og styðja stelpurnar okkar til sigurs, þetta er einn stærsti leikur tímabilsins og bikar í húfi. Hlökkum til að sjá ykkur og áfram KA!

Fyrir þá sem ekki komast á leikinn er hann í beinni útsendingu á KA-TV í boði Errea, Valor og Bílaleigu Akureyrar, kunnum þeim bestu þakkir fyrir framtakið!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is