KA Deildarmeistari kvenna (myndaveisla)

Blak
KA Deildarmeistari kvenna (myndaveisla)
Þriðji titill vetursins í höfn! (mynd: EBF)

KA varð Deildarmeistari í blaki kvenna annað árið í röð og samtals í fimmta skiptið er stelpurnar okkar lögðu lið Álftanes að velli 3-1 í KA-Heimilinu í hreinum úrslitaleik liðanna um sigur í deildinni. KA hefur því fagnað sigri í deildarkeppninni, bikarkepninni í vetur auk þess sem stelpurnar eru meistarar meistaranna.

Það var mikil spenna í KA-Heimilinu en leikur KA og Álftanes var gríðarlega jafn og spennandi en að lokum voru það stelpurnar okkar sem reyndust sterkari og lyftu því bikarnum í leikslok. Egill Bjarni Friðjónsson ljósmyndari var á svæðinu og býður hér til myndaveislu frá herlegheitunum.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá sigurfögnuði KA liðsins


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is