Leik KA og HK seinkað til 20:30

Blak

KA tekur á móti HK í síðari leik liðanna í úrslitakeppninni í blaki karla klukkan 20:30 í KA-Heimilinu í kvöld. Sigur tryggir strákunum sæti í undanúrslitunum og við þurfum á ykkar stuðning að halda!

Athugið að leikurinn átti upphaflega að fara fram kl. 19:00 en hefur verið seinkað til 20:30.

KA vann fyrri leik liðanna í Kópavogi 3-1 og er því í góðri stöðu til að klára einvígið. Ef HK vinnur í kvöld verður hinsvegar leikin gullhrina þar sem sigurliðið í þeirri hrinu fer áfram í undanúrslitin.

Ef þið komist ómögulega í KA-Heimilið er leikurinn í beinni á KA-TV á YouTube í boði Errea, Valor, Bílaleigu Akureyrar og Malbikun Norðurlands, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is