Strákarnir áfram í undanúrslitin

Blak

KA tryggði sér sæti í undanúrslitum úrslitakeppninnar í blaki karla með afar góðum 3-0 heimasigri á HK í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum keppninnar. KA hafði unnið 1-3 útisigur er liðin mættust í Kópavogi og vann þar með báða leikina í einvíginu og fer sannfærandi áfram í næstu umferð.

Mikil spenna var í fyrstu hrinu og var jafnt á nánast öllum tölum en þegar mest á reyndi sýndu KA strákarnir styrk sinn og lönduðu 25-19 sigri og komust þar með í 1-0 forystu. Sama var uppi á teningunum í þeirri annarri og aftur slitu strákarnir sig frá undir lokin og aftur vannst 25-19 sigur.

KA var þar með komið í lykilstöðu fyrir þriðju hrinuna. Mesti krafturinn var þá farinn úr gestunum og var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda. Að lokum vannst enn einn 25-19 sigurinn og leikurinn því unninn sannfærandi 3-0.

Strákarnir mæta nú Aftureldingu í undanúrslitunum en þar hefur Afturelding heimaleikjarétt en Mosfellingar enduðu í 2. sæti í deildinni á meðan KA endaði í 3. sæti. Fyrsti leikurinn fer fram í Mosfellsbæ á þriðjudaginn og heimaleikur okkar er svo á fimmtudaginn. Vinna þarf tvo leiki til að fara áfram í úrslitaeinvígið og verður oddaleikur á heimavelli Aftureldingar ef liðin vinna sitthvorn leikinn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is