KA í úrslit Kjörísbikars kvenna!

Blak

KA leikur til úrslita í Kjörísbikarnum í blaki kvenna en stelpurnar okkar tryggðu sig í úrslitaleikinn með afar sannfærandi 3-0 sigri á Þrótti Fjarðabyggð í undanúrslitum í dag. Sigur stelpnanna var í raun aldrei í hættu og alveg ljóst að stelpurnar ætla sér að verja bikarmeistaratitilinn.

KA vann fyrstu hrinu 25-12, aðra hrinu 25-17 og svo loks þriðju 25-16 og mæta liði HK á morgun, laugardag, í úrslitum klukkan 15:30 í Digranesi en HK vann 3-1 sigur á liði Völsungs fyrr í dag.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta í Digranes og styðja stelpurnar okkar til sigurs en annars er leikurinn í beinni á RÚV, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is