Einar og Matea best á lokahófi | Skarphéðinn og Bergrós efnilegust

Handbolti
Einar og Matea best á lokahófi | Skarphéðinn og Bergrós efnilegust
Verðlaunahafar á lokahófi KA og KA/Þór

Lokahóf handknattleiksdeildar KA og KA/Þór fór fram á miðvikudaginn og var gleðin við völd!

Leikmenn, ásamt mökum og stjórnarmönnum skemmtu sér vel og borðuðu góðan mat í KA-heimilinu.

Veitt voru verðlaun og viðurkenningar fyrir tímabilið sem er liðið.

Fimm leikmenn voru heiðraðir fyrir að spila 100 leiki fyrir félagið en það voru þau: Patrekur Stefánsson, Arnór Ísak Haddsson og Daði Jónsson karla megin en kvennamegin voru það Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir og Matea Lonac

Síðan voru veitt verðlaun fyrir: Besta leikmann, efnilegasta leikmann og besta liðsfélaga og fóru verðlaunin svona:

Bestur hjá KA: Einar Rafn Eiðsson
Efnilegastur hjá KA: Skarphéðinn Ívar Einarsson
Besti liðsfélagi hjá KA: Haraldur Bolli Heimisson

Best hjá KA/Þór: Matea Lonac
Efnilegust hjá KA/Þór: Bergrós Ásta Guðmundsdóttir
Besti liðsfélagi hjá KA/Þór: Anna Þyrí Halldórsdóttir

 

Þá voru þeim Rut Arnfjörð og Ólafi Gústafssyni þakkað sérstaklega fyrir sitt framlag til félaganna á undanförnum árum en þau kveðja að þessu tímabili loknu. Sömu sögu má segja um Telmu ÓSk Þórhallsdóttur og Skarphéðinn Ívar Einarsson. Loks fengu Arna Valgerður Erlingsdóttir og Þorvaldur Þorvaldsson, fráfarandi þjálfarar KA/Þór blómvönd fyrir sín störf en þau láta af störfum eins og fram hefur komið. Sömuleiðis fékk Guðlaugur Arnarsson viðurkenningu fyrir sín störf en hann lætur af störfum sem aðstoðarþjálfari KA eftir þetta tímabil.

 

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband