Elfar Árni framlengir við KA um 2 ár

Fótbolti

Knattspyrnudeild KA og framherjinn Elfar Árni Aðalsteinsson hafa framlengt samningi sínum um tvö ár. Elfar Árni sem er 28 ára gamall kom fyrst til KA fyrir sumarið 2015 og hefur því leikið fjögur tímabil með liðinu, þar af tvö síðustu í Pepsi deildinni.

Með KA hefur Elfar skorað 39 mörk í 93 leikjum í deild og bikar auk þess sem hann hefur lagt upp ófá mörkin fyrir liðsfélaga sína. Það eru miklar gleðifregnir að halda honum áfram innan okkar raða enda er hann flottur karakter utan vallar auk þess að vera magnaður leikmaður á vellinum.

Við hlökkum til að sjá Elfar Árna aftur á vellinum þegar fótboltinn fer aftur af stað og ætlumst áfram mikils af þessum flotta leikmanni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband