Elmar Dan í þjálfarateymi meistaraflokks

Fótbolti
Elmar Dan í þjálfarateymi meistaraflokks
Elmar (hægri) kemur í teymið með Hadda og Steina

Elmar Dan Sigþórsson kemur inn í þjálfarateymi meistaraflokks KA í knattspyrnu en Elmar þarf vart að kynna fyrir okkur KA-mönnum. Hann spilaði 116 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 12 mörk á árunum 2001 til 2012 þar sem hann var meðal annars fyrirliði.

Elmar er uppalinn hjá KA og steig ungur sín fyrstu skref í meistaraflokki sumarið 2001 er KA tryggði sér sæti í deild þeirra bestu. Hann var í kjölfarið lykilmaður í liðinu tímabilin 2002-2004 þar sem KA lék í efstu deild. Í kjölfarið lék hann með Víking Reykjavík og Fjarðabyggð en sneri aftur heim í KA fyrir sumarið 2007.


Elmar með fyrirliðabandið sumarið 2012

Árið 2009 gekk hann í raðir norska liðsins Tornado Måløy og síðar til norska liðsins Førde áður en hann lauk ferlinum með KA liðinu sumarið 2012. Undanfarin ár hefur Elmar verið öflugur stjórnarmaður í knattspyrnudeild KA, í vetur hefur hann setið þjálfaranámskeið KSÍ og mun hann halda áfram að mennta sig á því sviði.

Það er afar ánægjulegt að fá Elmar inn í þjálfarateymið enda býr hann yfir gífurlegri reynslu auk þess sem hann þekkir félagið út og inn. Við væntum því þess að Elmar muni verða öflugur fyrir félagið í þjálfaraúlpunni og bjóðum hann velkominn í teymið.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband