Glæsileg vorsýning fimleikadeildar KA

Almennt

Glæsileg vorsýning fimleikadeildar KA fór fram á laugardaginn í húsakynnum deildarinnar í Giljaskóla á Akureyri. Margt var um manninn og sýndu iðkendur deildarinnar listir sínar. Þetta er lokahnykkur á starfi vetrarins hjá deildinni og eru nú allir hópar komnir í sumarfrí.

Þrjár sýningar fóru fram yfir daginn og var húsfyllir á þeim öllum. Fimleikadeild KA vill koma á framfæri þakklæti til sjálfboðaliða sem komu að sýningunni, þjálfaranna og styrktaraðilina. Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband