Jafntefli eftir háspennuleik (myndaveislur)

Handbolti
Jafntefli eftir háspennuleik (myndaveislur)
Einar, Jón og Raggi heiđrađir (mynd Ţórir Tryggva)

KA tók á móti Aftureldingu í 19. umferđ Olísdeildar karla í handbolta í KA-Heimilinu í gćr og úr varđ algjör háspennuleikur sem endađi loks međ 25-25 jafntefli. Baráttan í deildinni er gríđarlega hörđ nú ţegar stutt er í úrslitakeppnina og ljóst ađ ţađ verđur mikil spenna í síđustu ţremur umferđum deildarinnar.

Fyrir leik voru ţeir Einar Birgir Stefánsson, Jón Heiđar Sigurđsson og Ragnar Snćr Njálsson heiđrađir en ţeir léku á dögunum sinn 100 leik fyrir KA.

Strákarnir okkar hafa veriđ á gríđarlegri siglingu ađ undanförnu en rétt eins og í síđasta leik gegn Fram á útivelli byrjuđu strákarnir ekki nćgilega vel og gestirnir úr Mosfellsbćnum tóku frumkvćđiđ. Sóknarleikurinn gekk illa og var stađan 5-9 er fyrri hálfleikur var hálfnađur. En öfugt viđ síđasta leik ţurftu strákarnir ekki hálfleik til ađ koma sér í gang og ţeir gerđu nćstu ţrjú mörk leiksins.


Smelltu á myndina til ađ skođa myndir Ţóris Tryggvasonar frá leiknum

Í kjölfariđ hótađi KA liđiđ ađ jafna metin og ţađ tókst loks skömmu fyrir hlé í stöđunni 12-12, strákarnir gerđu reyndar ögn betur og náđu forystunni í 13-12 en gestirnir náđu ađ jafna metin í 13-13 međ hálfgerđu flautumarki og spennan mikil fyrir síđari hálfleikinn.

Tímalína fyrri hálfleiks

Strákarnir voru komnir vel í gang og ţeir tóku frumkvćđiđ í ţeim síđari, ţeir náđu í nokkur skipti tveggja marka forystu en ávallt komu gestirnir til baka. Er fjórar mínútur lifđu leiks var stađan 25-23 fyrir KA en enn og aftur komu Mosfellingar til baka og jöfnuđu í 25-25. Strákarnir fengu tćkifćri á ađ tryggja sigurinn í síđustu sókn leiksins en ţeir misstu boltann og jafntefli ţví niđurstađan.

Tímalína seinni hálfleiks

Svekkjandi niđurstađa eftir ađ strákarnir höfđu veriđ međ leikinn í sínum höndum á lokakaflanum en ţegar litiđ er á leikinn í heild sinni er jafntefli líklega sanngjörn niđurstađa.


Smelltu á myndina til ađ skođa myndir Egils Bjarna frá leiknum

Ólafur Gústafsson fór hamförum í leiknum en hann gerđi 8 mörk úr vinstri skyttunni auk ţess ađ leika vel í vörninni. Óđinn Ţór Ríkharđsson var í gjörgćslu nćr allan leikinn en gerđi engu ađ síđur 5 mörk ţar af eitt úr víti. Jón Heiđar Sigurđsson og Allan Norđberg gerđu 4 mörk hvor, Arnó Ísak Haddsson gerđi 2 mörk og ţeir Einar Birgir Stefánsson og Patrekur Stefánsson gerđu eitt mark hvor.

Í markinu varđi Nicholas Satchwell 9 skot, ţar af tvö vítaköst en gestirnir brenndu í heildina af ţremur vítaköstum í leiknum.

Eftir leikinn er KA í 6.-7. sćti deildarinnar ásamt Stjörnunni međ 20 stig og Mosfellingar koma ţar fyrir aftan međ 19 stig. Efstu átta liđin fara í úrslitakeppnina og ólíklegt ađ Grótta og Fram blandi sér í ţá baráttu ţegar ţrjár umferđir eru eftir. Selfoss situr í 5. sćti deildarinnar međ 22 stig og spennandi barátta framundan en KA á einmitt eftir ađ mćta Selfyssingum og geta strákarnir ţví endađ í 5.-8. sćti deildarinnar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband