Jóan Símun Edmundsson í KA!

Fótbolti
Jóan Símun Edmundsson í KA!
Velkominn í KA!

KA barst heldur betur góđur liđsstyrkur í dag ţegar Jóan Símun Edmundsson skrifađi undir samning út núverandi tímabil. Jóan sem verđur 32 ára gamall á morgun er gríđarlega öflugur framherji sem er lykilmađur í fćreyska landsliđinu ţar sem hann hefur leikiđ 79 landsleiki og gert í ţeim 8 mörk.

Jóan hóf feril sinn međ B68 Toftir í Fćreyjum og hefur átt gríđarlega flottan feril ţar sem hann hefur leikiđ međ stórum liđum eins og Newcastle, Viking, Fredericia, Vejle, OB, Arminia Bielefeld og loks Beveren. Jóan var laus allra mála hjá Beveren og gat ţví gengiđ í rađir KA strax.

Hallgrímur Jónasson ţjálfari KA lék međ Jóan međ liđi OB í Danmörku og ber honum afar vel söguna. Ţađ fer ekki á milli mála ađ hér er á ferđinni hörkuleikmađur enda sannađ sig í efstu deild í Ţýskalandi og Danmörku sem og međ landsliđi Fćreyja.

KA liđiđ stendur í ströngu á ţremur vígsstöđvum og afar sterkt ađ fá Jóan í okkar rađir fyrir ţau átök. Strákarnir taka á móti Dundalk í fyrri leik liđanna í undankeppni Sambandsdeildar UEFA á Framvellinum á fimmtudaginn og viku síđar mćtast liđin ytra. Ţá eru strákarnir komnir í bikarúrslitaleikinn auk ţess sem gríđarlega hörđ barátta er í Bestu deildinni.

Ţađ verđur frábćrt ađ fylgjast međ ţessum öfluga kappa í gula og bláa búningnum og bjóđum viđ hann hjartanlega velkominn í KA. Minnum á ađ miđasala á stórleikinn gegn Dundalk á fimmtudaginn er í fullum gangi í Stubb og aldrei ađ vita nema Jóan leiki ţar sinn fyrsta leik fyrir KA.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband