KA og Þór skrifa undir samstarfssamning í kvennahandboltanum.

Almennt
KA og Þór skrifa undir samstarfssamning í kvennahandboltanum.
Við undirskrift samningsins
 

KA og Þór framlengja samstarf vegna rekstur KA/Þórs

 

KA og Þór hafa undirritað samstarfssamning um rekstur handknattleiksliðs kvenna þ.e. KA/Þórs næstu þrjú keppnistímabilin. Um er að ræða rekstur meistara- og 2. flokks kvenna, auk þess verður áfram samstarf um allt kvennastarf í yngri flokkum félaganna.

Rekstur KA/Þórs hefur verið á könnu KA undanfarin ár en samstarf hefur verið allt frá árinu 2003.  Nýji samningurinn sem hefur verið undritaður er að fyrirmynd þess rekstrarforms sem þekkist hjá sameiginlegu knattspyrnuliðs Þór/KA.  Með nýju rekstrarformi ætla menn sér að bæta alla umgjörð liðsins og þannig leggja sitt að mörkum við að halda liðinu áfram í fremstu röð.  

Rekstur KA/Þórs mun samkvæmt samningnum vera á kennitölu óstofnaðs rekstrarfélags KA/Þór. Liðið mun spila áfram í sömu búningum sem er í hlutlausum litum líkt og gert hefur verið undanfarin ár.   

Samningur þessi gildir frá og með undirritun til maí 2022. 

Bæði félögin hafa skipað sex manna stjórn KA/Þórs þ.e. þrír frá hvoru félagi.

KA/Þór sem leikur í Olís deildinni lauk keppni í vor í 5. sæti deildarinnar með 19 stig.

Undir samningana skrifuðu 
Ingi Björnsson formaður Þórs
Ingvar Már Gíslason formaður KA
Haddur Júlíus Stefánsson formaður handknattleiksdeildar KA
Þorvaldur Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar Þórs

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband