Myndaveislur frá bæjarslag KA og Þórs

Handbolti
Myndaveislur frá bæjarslag KA og Þórs
Hart barist að vanda í gær (mynd: Þórir Tryggva)

KA og Þór mættust í lokaumferð Olísdeildar karla í handboltanum í KA-Heimilinu í gær. Það má með sanni segja að taugarnar hafi verið þandar en liðunum tókst ekki að skora mark fyrr en eftir tíu mínútna leik og að lokum þurftu þau að sætta sig við jafnan hlut með 19-19 jafntefli.

Þórir Tryggvason og Egill Bjarni Friðjónsson ljósmyndarar voru á svæðinu og bjóða til myndaveislu frá leiknum eftirminnilega. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir framtakið.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggva frá leiknum

Með jafnteflinu er það ljóst að KA endar í 6. sæti deildarinnar en sigur hefði lyft liðinu upp í það fjórða. Þórsarar voru hinsvegar fallnir fyrir leik og börðust fyrir stoltið og það gerðu þeir svo sannarlega. 


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum

Það er því ljóst að KA mætir liði Vals í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar en leikið er heima og heiman. Fyrri leikur liðanna er strax á þriðjudaginn, 1. júní, í KA-Heimilinu og alveg klárt að við þurfum á öllum ykkar stuðningi að halda til að koma strákunum í góða stöðu fyrir seinni leikinn fyrir sunnan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband