Rakel Sara og Ásdís í B-landsliđinu

Handbolti
Rakel Sara og Ásdís í B-landsliđinu
Frábćrt tćkifćri hjá Rakel og Ásdísi

Rakel Sara Elvarsdóttir og Ásdís Guđmundsdóttir standa nú í ströngu međ B-landsliđi Íslands í handbolta. Arnar Pétursson landsliđsţjálfari valdi 21 leikmann í B-landsliđiđ til ćfinga ţessa dagana og fá leikmenn ţar frábćrt tćkifćri á ađ sýna sig og sanna fyrir Arnari.

Í tilkynningu HSÍ segir Arnar ađ hann vilji kynnast fleiri leikmönnum og ţannig víkka sjóndeildarhringinn áđur en nćsti hópur hjá A-landsliđinu sé valinn. Ţađ sé töluverđur tími í nćsta verkefni og ţví réttur tími til ađ gefa fleirum tćkifćri.

Ásdís sem er 22 ára gömul var valin besti leikmađur tímabilsins hjá KA/Ţór en hún gerđi alls 86 mörk í vetur í 20 leikjum. Hún stóđ heldur betur fyrir sínu á línunni og hefur heldur betur stimplađ sig inn í efstu deild síđustu tímabil.

Rakel Sara sem er ađeins 17 ára gömul er ţrátt fyrir ţađ algjör lykilleikmađur í liđi KA/Ţórs og var ađ klára sitt annađ tímabil í meistaraflokki. Hún gerđi 61 mark í hćgra horninu í vetur auk ţess sem hún hefur fariđ á kostum međ unglingalandsliđum Íslands undanfarin ár.

Viđ óskum stelpunum til hamingju međ ţennan mikla heiđur og óskum ţeim góđs gengis á ćfingunum sem nú standa yfir.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband