Sif framlengir við KA/Þór

Handbolti

Sif Hallgrímsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við KA/Þór og leikur því áfram með liðinu á næstu leiktíð. Sif sem er 18 ára gömul er ákaflega efnilegur markvörður sem hefur verið viðloðin yngrilandslið Íslands.

Sif hefur leikið með meistaraflokk KA/Þór undanfarin tvö tímabil þar sem hún hefur leikið 36 leiki. Hún hefur staðið vel fyrir sínu en í þessum leikjum er hún samtals með 32,4% markvörslu sem er mjög gott.

"Sif er einn efnilegasti markmaður landsins í dag, við viljum endilega bjóða henni upp á góða aðstöðu hér fyrir norðan og gera úr henni þann öfluga markmann sem við teljum að hún geti orðið" segir Stefán Guðnason formaður KA/Þórs.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband