Sigur í fyrsta heimaleiknum (myndaveisla)

Handbolti
Sigur í fyrsta heimaleiknum (myndaveisla)
Anna Ţyrí skorar í sigrinum mikilvćga (mynd: EBF)

KA/Ţór tók á móti Haukum í fyrsta heimaleik vetrarins á sunnudaginn en liđunum er spáđ svipuđu gengi í vetur og úr varđ hörkuleikur ţar sem stelpurnar okkar náđu ađ knýja fram sigur á lokasekúndum leiksins.

Fyrir leik var Martha Hermannsdóttir hyllt en hún hefur nú lagt skóna á hilluna eftir magnađan feril. Hún er án nokkurs vafa mesta gođsögn í sögu KA/Ţórs en hún var fyrirliđi liđsins sem hampađi Íslands-, Bikar- og Deildarmeistaratitlum og lék alls 308 leiki fyrir félagiđ.

Sem betur fer munum viđ áfram njóta krafta Mörthu í kringum liđiđ og var hún starfsmađur á leiknum á sunnudaginn auk ţess sem hún hefur tekiđ ađ sér ţjálfun yngriflokka hjá KA/Ţór.


Smelltu á myndina til ađ skođa myndir Egils Bjarna frá leiknum

Leikurinn fór fjörlega af stađ og voru stelpurnar okkar međ yfirhöndina ţó gestirnir hafi aldrei veriđ langt undan. Tempóiđ datt ađeins niđur er leiđ á fyrri hálfleikinn og gekk liđunum bölvanlega ađ skora um miđbik hálfleiksins en KA/Ţór leiddi 11-10 í hálfleik.

Matea Lonac var stórkostleg í markinu en hún varđi alls 20 skot í leiknum og var í lykilhlutverki er KA/Ţór náđi ađ slíta sig fimm mörkum frá Haukunum er leiđ á síđari hálfleikinn. En gestirnir komu sér aftur inn í leikinn og úr varđ svakaleg spenna á lokamínútunum.

Spennustigiđ var hátt og voru ţví mistök á báđa bóga en ađ lokum tókst ađ tryggja sćtan 26-25 sigur og afar mikilvćg tvö stig í hús. Rut Arnfjörđ Jónsdóttir var markahćst í okkar liđi međ 5 mörk rétt eins og Lydía Gunnţórsdóttir en Lydía sem verđur 16 ára gömul síđar í mánuđinum sýndi stáltaugar á vítapunktinum og brást ekki bogalistin í fimm tilraunum.

Unnur Ómarsdóttir lék töluvert fyrir utan og gerđi 4 mörk rétt eins og Kristín Ađalheiđur Jóhannsdóttir. Anna Ţyrí Halldórsdóttir gerđi 3 mörk, Hrafnhildur Irma Jónsdóttir 2 mörk og ţćr Katrín Vilhjálmsdóttir, Hulda Bryndís Tryggvadóttir og Júlía Björnsdóttir gerđu allar eitt mark.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband