U18 fékk silfur á Sparkassen cup - 5 frá KA

Handbolti
U18 fékk silfur á Sparkassen cup - 5 frá KA
Magnađir fulltrúar KA!

KA átti alls fimm fulltrúa í U18 ára landsliđi Íslands í handbolta sem keppti á Sparkassen Cup í Ţýskalandi undanfarna daga en mótinu lauk nú í kvöld. Ţetta eru ţeir Dagur Árni Heimisson, Hugi Elmarsson, Jens Bragi Bergţórsson, Magnús Dagur Jónatansson og Óskar Ţórarinsson.

Íslenska liđiđ hóf mótiđ á öruggum 21-31 sigri á úrvalsliđi Saar hérađsins. Íslenska liđiđ náđi strax frumkvćđinu og leiddi 10-13 í hálfleik. Sigurinn var svo aldrei í hćttu í síđari hálfleik og vannst ađ lokum 10 marka sigur. Dagur Árni var markahćstur í liđi Íslands međ 6 mörk, Hugi gerđi 3 mörk rétt eins og Jens Bragi og Magnús Dagur gerđi tvö mörk. Óskar varđi 5 skot í markinu.

Í öđrum leik sínum mćttu strákarnir liđi Ţýskalands, eftir jafnar upphafsmínútur kom slakur kafli og heimamenn leiddu 13-8 í hálfleik. Ekki batnađi stađan í ţeim síđari og má ţar helst kenna slakri fćranýtingu um og tapađist leikurinn 26-18. Jens Bragi gerđi 5 mörk í leiknum, Dagur Árni gerđi 2 mörk og Hugi eitt. Óskar varđi 5 skot í markinu.

Strákarnir stigu hinsvegar allhressilega upp í lokaleik sínum í riđlinum ţar sem ţeir rótburstuđu liđ Belga. Hálfleikstölur voru 17-5 Íslandi ívil og vannst ađ lokum 33-14 stórsigur. Magnús Dagur gerđi eitt mark í leiknum og Óskar varđi 7 skot í markinu. Međ sigrinum tryggđu strákarnir sér sćti í undanúrslitum mótsins.

Ţar mćttu ţeir liđi Slóvena sem höfđu unniđ hinn riđilinn. Slóvenar leiddu 12-15 í hálfleik en síđari hálfleikur varđ gríđarlega spennandi og fór ađ lokum svo ađ liđin voru jöfn 25-25 í leikslok. Var ţá fariđ í vítakeppni sem fór í margfaldan bráđabana en ađ lokum vannst gríđarlega sćtur 33-32 sigur og íslenska liđiđ komiđ í úrslit. Dagur Árni gerđi 5 mörk í leiknum, Jens Bragi 4 og Hugi eitt mark auk ţess sem ađ Óskar varđi 6 skot í markinu.

Í úrslitaleiknum mćttu strákarnir liđi Ţýskalands sem reyndist aftur of sterkur andstćđingur. Heimamenn leiddu 20-16 í hálfleik og unnu loks leikinn 34-26 og standa ţví uppi sem sigurvegarar á mótinu. Jens Bragi gerđi 3 mörk í leiknum og Dagur Árni tvö auk ţess sem Óskar varđi 9 skot í markinu.

En eins og góđur mađur sagđi ađ ţá er gott silfur gulli betra og geta strákarnir veriđ afar sáttir međ framgöngu sína á mótinu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband