Útileikur á Álftanesi hjá stelpunum

Blak

KA sækir lið Álftanes heim í Mizunodeild kvenna í blaki í dag klukkan 13:00 en þarna mætast liðin í 3. og 4. sæti deildarinnar og má reikna með krefjandi leik. KA hefur unnið báða leiki liðanna til þessa í vetur en fyrri viðureignin á Álftanesi fór í oddahrinu.

Toppliðin þrjú HK, Afturelding og KA hafa skilið sig frá hinum liðunum í deildinni en framundan er gríðarlega hörð barátta hjá Álftanes, Þrótti Neskaupstað og Þrótti Reykjavík um síðasta sætið í úrslitakeppninni og ekki spurning að Álftanes mun veita okkur harða mótspyrnu í dag.

Leikurinn verður í beinni á streymissíðu BLÍ og spennandi að sjá hvernig leikurinn spilast, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband