KA menn komnir í úrslit bikarkeppninnar

Blak
KA menn komnir í úrslit bikarkeppninnar
Zdravko Demirev laumar á KA menn

KA menn mættu Fylki í undanúrslitum bikarkeppninnar í dag og unnu  leikinn 3-0.  Fyrirfram var vitað að lið Fylkis gæti orðið KA mönnum skeinuhætt þó það spili í annarri deild enda skipað reynslumiklum leikmönnum.  Það koma líka á daginn að KA menn þurftu að hafa töluvert fyrir sigri í leiknum. 

Tvær fyrstu hrinurnar reyndust KA mönnum reyndar nokkuð auðveldar.  KA menn náðu fljótt forristu í þeim báðum og héldu henni til enda hrinna.  Fyrsta hrinan vannst 25-20 og önnur hrinan 25-21.  Í þriðju hrinunni bar mikið á mistökum hjá KA mönnum og Fylkismenn sýndu góðan leik og náðu góðri forristu 18-11. Þá kom Davíð Búi í uppgjöfin hjá KA mönnum og með nokkrum góðum uppgjöfum og góðri vörn KA manna náði KA að jafna 18 -18.  Hrinan var í járnum þar til yfir lauk en KA landaði sigri 25-23 og tryggði sér bikarúrslitasætið gegn Þrótti Reykjavík sem vann Stjörnuna örugglega 3-0 í hinum undanúrslitaleiknum.

Leikmenn KA spiluðu vel í leiknum og sýndu mikin styrk að vinna upp nánast tapaða stöðu í þriðju hrinunni. Liðið er því greinilega vel stemmt fyrir úrslitaleikinn gegn Þrótti sem fram fer á morgun.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is