Þökkum aðstoðina við NEVZA mótið

Blak
Þökkum aðstoðina við NEVZA mótið
Lið Íslands á lokathöfn mótsins

Fyrir hönd Blakdeildar KA og BLÍ vil ég þakka öllum þeim mörgu sem aðstoðuðu við framkvæmd NEVZA mótsins hér á Akureyri. Við höfum fundið að mótið hefur fengið mjög jákvæða umfjöllun, bæði hér á Akureyri og vítt um land. Fólk kom víða að til þess að fylgjast með mótinu og var aðsókn á leiki með ágætum og hörkustemming í íþróttahúsunum - sérstaklega á leikjum íslensku liðanna.

Sigurður Arnar Ólafsson

 

Blakdeild KA og BLÍ fengu mikið hrós frá þátttökuþjóðunum fyrir góða skipulagningu og framkvæmd mótsins og m.a. taldi formaður NEVZA Magnus Tausen að þetta væri einhver besta framkvæmd NEVZA móts frá upphafi. Fjölmargir komu að framkvæmdinni og þurftum við að manna um 200 stöður við leiki mótsins eða um 10 í hverjum leik. Auk þess kom fjöldi manna að öðrum undirbúningi og má ætla að um 250 manns hafi komið að mótinu og undirbúningi þess á einn eða annan hátt.

Ég vek athygli á því að Sigurjón Svanbergsson tók fjölda mynda fyrir okkur á mótinu en þær má sjá á vef BLÍ www.bli.isÞar má einnig sjá fréttir af góðum árangri kvennaliðs Íslands sem náði bronsverðlaunum á mótinu eftir mikla rimmu við Norðmenn. Auk þessa var Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir kosinn besti leikmaður mótsins í kvennaflokki.

Úrslit mótsins má sjá á www.blak.is

Að lokum vil ég velja athygli á stærstu styrktaraðilum okkar á mótinu sem voru KEA, Goði, Iceland Air og Kjörís.

F.h. Blakdeildar KA.

Með bestu kveðju

Sigurður Arnar Ólafsson


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is