Viðburður

Blak - 22:00

Fyrsti leikur kvennaliðs KA í 1 deild í tvö ár

Kvennalið KA leikur í kvöld sinn fyrsta leik í fyrstu deild í tvö ár en KA mætir liði þróttar Reykjavík og fer leikurinn fram í íþróttahúsi kennaraháskólans kl. 22.00.  KA hefur undanfarin tvö ár byggt upp nýtt lið frá grunni og er hefur kjarni liðsins æft með KA upp í gegn um alla yngriflokka félagsins í 6-7 ár.  Liðið hefur einnig fengið til sín góðan liðsstyrk frá Bjarma í Þingeyjarsveit.

Tvær ungar stúlkur sem hafa æft í mörg ár hjá Ungmennafélaginu Bjarma í Þingeyjarsveit hafa gengið til liðs við KA.  Það eru þær Ísey Hávarsdóttir sem er 16 ára og Harpa Hauksdóttir sem er 17 ára. Þær hafa æft blak í nokkur ár í Stjórutjarnarskóla undir dyggri handleiðslu fyrrum leikmanns KA Olgu Zimjanikovu.  Þarna má lika segja að uppbyggingarstarf Blaksambands Íslands í krakkablaki sé að skila sér upp í meistaraflokka en Bjarmi hefur nú í nokkur ár telft fram liðum í Íslandsmótum BLÍ í krakkablaki.  Það sýnir sig að uppbygginarstarf í minni byggðarlögum og skólum úti á landi er blakíþróttinni gríðarlega miklvægt - það sannast hér.  Það er líka ánægjulegt að sjá aftur leikmenn frá Stórutjörnum koma inn í blakíþróttina í meistaraflokkum en þar eru uppaldir margir af burðarásum íþróttarinnar síðustu 20 árin.  Í Stjórutjarnarskóla vann einn af frumkvöðlum blakíþróttarinnar, íþróttakennarinn Hjörtur Einarsson, gírðarlega gott uppbyggingarstarf en hann kenndi blak í Stórutjarnarskóla á árunum frá 1978-1983 - en meira um það síðar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is