Góður árangur hjá IBA í blakinu á landsmóti UMFÍ

Blak
Bæði karla og kvennalið IBA stóðu sig með ágætum á landsmóti UMFÍ sem fór fram á Akureyri um helgina.  Kvennaliðið tók silfrið og karlaliðið bronsið.  Blakliðin náðu í 170 stig fyrir ÍBA en ÍBA vann stigakeppnina með glæsibrag með 1819 stig. Blakið var í 3. sæti af einstökum íþróttagreinum innan ÍBA á eftir sundinu og golfinu frábær árangur það.

Kvennaliðið okkar kom skemmtilega á óvart með því að ná öðru sætinu en liðið var að uppistöðu hið unga lið KA en með tvo reynslubolta frá Skautafélaginu, þær Heiðu Einarsdóttur og Margréti Guðjónsdóttur. sér til stuðnings.  Þessi blanda kom svona glimrandi vel út og árangurinn eftir því.

Strákarnir stóðu sig einnig vel á mótinu en voru óheppnir að komast ekki ofar á stigatöfluna en þeir töpuðu naumlega í oddahrinum bæði á móti UMSK 13-15 og HSK 17-19 sem urðu svo í 1. og 2. sæti í mótinu og ÍBA varð að sætta sig við 3. sætið.  Liðið var blanda af leikmönnum KA úr meistaraflokki og öldungaleikmönnum KA.  Tvennir feðgar kepptu með IBA en það voru þeir Sveinn Hreinsson og Daníel Sveinsson og Sigurður Arnar Ólafsson og Arnar Páll Sigurðsson.

Nánari úrslit leikja má finna á http://www.blak.is/ 

STRANDBLAK

Að lokum má geta þess að Harpa Björnsdóttir og Auður Jónsdóttir urðu í 3 sæti í strandblakskeppninni sem var sýningargrein á mótinu. KA mennirnir Kristján og Hafsteinn Valdimarssynir urðu einnig í 3 sæti í strandblakinu en þeir kepptu reyndar með HSK á mótinu.  Valgeir Valgeirsson KA maður og Ólafur Arason HK maður kepptu saman og urðu í 4. sæti.

 

Heildarstig IBA á landsmóti UMFÍ 2009.
   
Íþróttagrein stig
Sund 222
Golf 190
Blak 170
Íþróttir fatlaðra 154
Júdó 143
Knattspyrna 135
Siglingar 123
Hestaíþróttir 99
Körfuknattleikur 95
Handknattleikur 90
Badminton 80
Skák 80
Fimleikar 70
Skotfimi 65
Starfsíþróttir 49
Bridds 30
Borðtennis 18
Dans 3
Frjálsar íþróttir 3
Glíma 0
Samtals stig 1819

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is