Toppslagur í Mosfellsbænum í kvöld

Blak

Það er heldur betur toppslagur í úrvalsdeild kvenna í blaki í kvöld þegar KA sækir Íslandsmeistara Aftureldingar heim. Liðin eru jöfn á toppnum með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjá leiki tímabilsins og ljóst að það verður hart barist að Varmá kl. 20:00.

Afturelding er með gríðarlega sterkt lið og er spáð titlinum í ár en KA liðið hefur svo sannarlega reynslu af því að berjast um titlana og ljóst að leikur kvöldsins verður æsispennandi. Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta í Mosfellsbæinn og styðja stelpurnar til sigurs en fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni á streymissíðu BLÍ, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is