Keppa á BUDO NORD CUP í Svíðjóð

Júdó
Keppa á BUDO NORD CUP í Svíðjóð
KA liðið á Kastrub

Á morgun hefst Budo-Nord CUP  í Svíþjóð. Þar á Júdódeild KA fjóra fulltrúa en þátttakendur eru um 550 frá um 15 löndum. Í framhaldi eru svo æfingabúðir fram á sunnudag en u.þ.b. 1000 manns hafa verið í æfingabúðunum undanfarin ár.

Ferðin hefur verið árleg og er mikið ævintýri fyrir þá sem taka þátt. Adam Brands þjálfari er fararstjóri og tekur þátt í þriggja daga þjálfarabúðum sem fara fram sömu daga. Hægt verður að fylgjast með framvindu mótsins og horfa á streymi hér.

Þeir sem keppa á morgun eru:

  • Birkir Bergsveinsson U15 -60 kg flokkur.
  • Gylfi Rúnar Edduson U18 -66 kg flokkur.
  • Hannes Snævar Sigmundsson U18 -60 kg flokkur.
  • Kristín Embla Guðjónsdóttir U21 -78 kg flokkur.

Við óskum þeim góðs gengis.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is