101 miði í boði á KA - HK í blakinu

Blak
101 miði í boði á KA - HK í blakinu
Stórleikur framundan! (mynd: EBF)

UPPFÆRT! Við höfum brugðist við í samráði við Blaksamband Íslands og er því 101 miði í boði á leik KA og HK í Mizunodeild kvenna í blaki í kvöld. Sjá mynd hvar stæði fyrir áhorfendur eru staðsett í salnum.

 

Miðasala hefst kl. 16:00 í KA-Heimilinu og þurfa ársmiðahafar að tryggja sér miða með því að sýna ársmiðann. Einnig þarf að verða sér útum miða fyrir þá sem eru 16 ára og yngri.
 
KA tekur á móti HK í annarri umferð Mizunodeildar kvenna í blaki í KA-Heimilinu á miðvikudaginn klukkan 20:00. Liðin hafa barist um helstu titlana undanfarin ár og má búast við svakalegum leik en KA liðið er með eitt stig eftir fyrsta leik vetrarins þar sem liðið tapaði í oddahrinu gegn Aftureldingu.
 
Athugið að vegna Covid stöðunnar eru aðeins 50 miðar í boði og eru 16 ára og yngri inni í þeirri tölu. Það er því um að gera að hafa hraðar hendur þegar miðasala hefst kl. 16:00 á miðvikudaginn. Athugið að ársmiðahafar þurfa að tryggja sér einn af 50 aðgangsmiðum á leikinn með því að sýna ársmiðann er miðasala hefst.
 
Fyrir þá sem ekki komast á leikinn verður hann í beinni útsendingu á KA-TV.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is