8 fulltrúar KA á EM U18 í blaki

Blakdeild KA á alls átta fulltrúa í lokahópum U18 landsliða karla og kvenna í blaki sem taka þátt á EM í sumar en þetta er í fyrsta skiptið sem íslensk blaklandslið keppa á lokamóti EM en bæði lið tryggðu sér þátttökurétt eftir sigur á Evrópumóti smáþjóða fyrr á árinu.

EM hjá stelpunum fer fram í Lettlandi dagana 1.-12. júlí næstkomandi en KA á þrjá fulltrúa í hópnum sem eru þær Anika Snædís Gautadóttir, Kara Margrét Árnadóttir og Katla Fönn Valsdóttir. Auk þeirra er Jóna Margrét Arnarsdóttir leikmaður KA ein af þjálfurum liðsins. Þá er Inga Björg Brynjúlfsdóttir einnig í hópnum en hún er að ganga í raðir KA frá Völsung.

Strákarnir keppa á Ítalíu dagana 7.-18. júlí en frá KA eru í hópnum þeir Ágúst Leó Sigurfinsson, Eiríkur Hrafn Baldvinsson, Hákon Freyr Arnarsson, Kristján Már Árnason og Þórarinn Bergur Arinbjarnarson.

Eins og áður segir er þetta í fyrsta skiptið sem íslensk blaklandslið keppa á lokamóti EM og verður virkilega spennandi að fylgjast með framgöngu okkar mögnuðu fulltrúa. Bæði lið unnu sannfærandi sigra á Evrópumóti smáþjóða fyrr á árinu auk þess sem flestir okkar fulltrúar í landsliðunum hafa nú þegar brotið sér leið inn í sterk meistaraflokkslið KA og ljóst að framtíðin er ansi björt hjá blakdeild KA.