Alexander í landsliðinu í undankeppni EM

Blak
Alexander í landsliðinu í undankeppni EM
Hópurinn sem mætir Slóvakíu (mynd: Blakfrettir)

Íslenska karlalandsliðið í blaki hefur leik í undankeppni EM 2019 í dag þegar strákarnir sækja Slóvakíu heim. Auk Íslands og Slóvakíu eru Svartfjallaland og Moldóva í riðlinum. Fyrirfram er Slóvakía sterkasta liðið en Slóvakar hafa farið í lokakeppnina síðustu sex skipti.

Alexander Arnar Þórisson leikmaður KA er í hópnum en hann er nýliði og gæti því spilað sinn fyrsta landsleik í dag. Við óskum Alexander að sjálfsögðu til hamingju með landsliðssætið og óskum liðinu góðs gengis.

Hægt verður að sjá leikinn í beinni en hann hefst klukkan 16:00 og má nálgast hann með því að smella hér.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is