Breytingar á æfingatöflu blakdeildar

Blak

Smá breytingar hafa orðið á æfingatöflu blakdeildar KA og bendum við því öllum á að fara vel yfir töfluna hér fyrir ofan. Vetrarstarfið er komið á fullt í blakinu og viljum við bjóða alla áhugasama velkomna að koma og prófa en frítt er að æfa í september.

Mikil gróska er í blakinu hjá KA um þessar mundir en bæði karla- og kvennalið félagsins eru Íslands-, Bikar- og Deildarmeistarar eftir magnað tímabil.

Gunnar Pálmi Hannesson stýrir æfingum hjá 6. og 7. flokk og Paula del Olmo sér um þjálfun hjá 3.-4. flokk. Filip Pawel Szewczyk og Paula stýra svo 2. flokk. Blakdeild æfir bæði í KA-Heimilinu og íþróttahúsi Naustaskóla og hvetjum við ykkur eindregið til að kíkja og prófa blak!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is