Dregið í Kjörísbikarnum í blaki

Blak

Í dag var dregið í 8-liða úrslit Kjörísbikars karla og kvenna í blaki. Bæði lið KA voru að sjálfsögðu í pottinum en karlalið KA er eins og flestir vita ríkjandi bikarmeistari og hefur unnið bikarkeppnina þrisvar á síðustu fjórum árum.

Karlalið KA fékk útileik gegn Hamar frá Hveragerði en Hamarsmenn leika í 1. deildinni og sitja þar í 2.-3. sæti.

Kvennaliðið okkar fékk heimaleik gegn Þrótti Reykjavík en bæði lið leika í Mizunodeildinni og vann KA einmitt 0-3 útisigur í viðureign liðanna á sunnudaginn.

Leikirnir munu fara fram dagana 17.-24. febrúar næstkomandi.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is