Fimm fulltrúar KA með U18 á EM á Ítalíu

KA átti fimm fulltrúa í U18 ára landsliði Íslands í blaki karla sem keppti á Evrópumeistaramótinu sem fram fór á Ítalíu nú á dögunum. Þetta eru þeir Ágúst Leó Sigurfinsson, Eiríkur Hrafn Baldvinsson, Hákon Freyr Arnarsson, Kristján Már Árnason og Þórarinn Bergur Arinbjarnarson.

Fyrir sumarið hafði íslenskt blaklandslið aldrei tekið þátt á lokamóti EM en bæði drengirnir sem og stúlkurnar í U18 landsliðunum skrifuðu söguna upp á nýtt með því að tryggja sér þátttökurétt á mótum sumarsins. Stelpurnar léku í Lettlandi á dögunum en þar átti KA fjóra fulltrúa, þær Anika Snædís Gautadóttir, Inga Björg Brynjúlfsdóttir, Kara Margrét Árnadóttir og Katla Fönn Valsdóttir.

Strákarnir léku í riðli með Póllandi, Ítalíu, Slóveníu, Grikklandi, Finnlandi, Serbíu og Tyrklandi en vitað var fyrirfram að um gríðarlega krefjandi verkefni væri að ræða. Strákarnir gerðu engu að síður afar vel og gáfu hinum sterku mótherjum ekkert eftir og hefðu hæglega geta unnið þó nokkrar hrinur en að lokum þurftu strákarnir að sætta sig við neðsta sætið í riðlinum. Til að mynda áttu strákarnir hörkuleik gegn Pólverjum sem unnu að lokum mótið sannfærandi en hrinurnar í leik Íslands og Póllands fóru 15-25, 20-25 og 22-25.

Águst Leó Sigurfinnsson átti magnað mót en hann fór fyrir stigaskorun liðsins og var stigahæsti leikmaður Íslands í öllum leikjum liðsins. Strákarnir geta verið stoltir af frammistöðu sinni á mótinu og óskum við þeim Ágústi, Eiríki, Hákoni, Kristjáni og Þórarni innilega til hamingju með þennan glæsta áfanga. Framundan er svo spennandi blakvetur hjá meistaraflokksliði KA en strákarnir hafa verið að brjóta sér leið inn í liðið þrátt fyrir ungan aldur og ljóst að þeir eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér.