Fjórar frá KA í eldlínunni með U18 á EM

Inga, Anika, Kara og Katla stóðu fyrir sínu í Lettlandi
Inga, Anika, Kara og Katla stóðu fyrir sínu í Lettlandi

Blakdeild KA átti fjóra fulltrúa í U18 ára landsliði Íslands í blaki kvenna sem keppti í lokakeppni EM sem fram fór í Lettlandi nú á dögunum. Þátttaka liðsins er söguleg en þetta er í fyrsta skiptið í sögunni sem Ísland kemst í lokakeppni stórmóts í blaki.

Þetta eru þær Anika Snædís Gautadóttir, Inga Björg Brynjúlfsdóttir, Kara Margrét Árnadóttir og Katla Fönn Valsdóttir en auk þeirra var Jóna Margrét Arnarsdóttir leikmaður KA ein af þjálfurum liðsins. Stelpurnar tryggðu sér sæti á EM eftir sannfærandi sigur á Evrópumóti smáþjóða fyrr á árinu en vitað var að ansi krefjandi verkefni væri framundan.

Íslenska liðið lék í riðli með Tyrklandi, Ítalíu, Belgíu, Póllandi, Spáni, Tékklandi og heimaliðinu frá Lettlandi. Stelpurnar sýndu flotta baráttu og gáfu sig allar í þetta erfiða verkefni en þurftu á endanum að sætta sig við neðsta sætið í riðlinum. Það segir ýmislegt um styrk liðanna sem stelpurnar áttu við að í úrslitaleiknum mættust Ítalía og Tyrkland sem léku einmitt bæði í riðli Íslands.

Inga Björg var fyrirliði íslenska liðsins og stóð svo sannarlega fyrir sínu rétt eins og þær Anika, Kara og Katla en allar léku stelpurnar stórt hlutverk í liðinu. Framundan er svo spennandi blakvetur hjá kvennaliði KA en stelpurnar verða allar í eldlínunni með meistaraflokksliði KA þrátt fyrir ungan aldur og ljóst að þær eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér.