Fullkomin helgi hjá U20 liði KA

Blak
Fullkomin helgi hjá U20 liði KA
Strákarnir okkar flottir um helgina

Fyrsta túrnering á Íslandsmótinu í blaki karla hjá leikmönnum 20 ára og yngri fór fram á Húsavík um helgina. Það má með sanni segja að strákarnir okkar hafi staðið sig með prýði en þeir unnu alla leiki sína og það án þess að tapa hrinu.

Leikin var heil umferð um helgina og mættust því öll liðin í deildinni einu sinni. Strákarnir okkar eins og áður segir gerðu sér lítið fyrir og unnu alla leiki sína án þess að tapa hrinu og eru því á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir helgina góðu.

Síðari umferðin verður svo leikin í vor og er áætlað að þeir leikir fari fram í Digranesi í Kópavogi. Nokkrir leikmenn okkar liðs hafa nú þegar brotið sér leið inn í meistaraflokkslið KA og verður spennandi að fylgjast áfram með framgöngu þeirra í vetur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is