Heimaleikur hjá stelpunum í dag

Blak

KA tekur á móti Álftanes í Mizunodeild kvenna í blaki klukkan 15:00 í KA-Heimilinu í dag. Þetta er fyrsti leikur stelpnanna eftir Covid pásuna og verður gaman að sjá hvernig liðið okkar mætir til leiks.

Liðin mættust fyrir sunnan í síðasta leiknum sem fór fram í deildinni og endaði sá leikur í oddahrinu þar sem KA stóð á endanum uppi sem sigurvegari 16-18 eftir að oddahrinan fór í upphækkun og vann þar með leikinn 2-3.

Helena Kristín Gunnarsdóttir sem er ein af lykilleikmönnum KA meiddist illa í vetur og var ekki með í þessum síðasta leik og verður frá í einhvern tíma. Í hennar stað er hinsvegar mætt Mireia Orozco og verður áhugavert að sjá hvernig hún kemur inn í liðið.

Athugið að vegna sóttvarnarreglna eru áhorfendur ekki leyfðir á leiknum en leikurinn verður í beinni útsendingu á KA-TV og því um að gera að fylgjast vel með gangi mála, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is