Jóna, Gísli og Helena í úrvalsliðum fyrri hlutans

Blak
Jóna, Gísli og Helena í úrvalsliðum fyrri hlutans
Glæsilegir fulltrúar KA!

KA á þrjá fulltrúa í úrvalsliðum fyrri hluta úrvalsdeilda karla og kvenna í blaki en þetta eru þau Jóna Margrét Arnarsdóttir, Gísli Marteinn Baldvinsson og Helena Kristín Gunnarsdóttir. Öll hafa þau farið hamförum það sem af er vetri og ansi vel að heiðrinum komin.

Jóna Margrét er í stöðu uppspilara í kvennaliðinu og Helena Kristín er önnur af köntum liðsins. Jóna sem var á dögunum kjörin íþróttakona KA fyrir árið 2022 er með flesta ása í deildinni til þessa eða 25 stykki og þá er Helena ein af stigahæstu leikmönnum deildarinnar með 115 stig. Lið KA er á toppi úrvalsdeildar kvenna eftir magnaðan 3-2 sigur á Álftnesingum á dögunum sem voru á toppnum fyrir leikinn.

Gísli Marteinn er í úrvalsliði karlanna í stöðu miðju en hann hefur heldur betur slegið í gegn í þeirri stöðu í vetur en áður lék hann sem kantur. Hann er ansi vel að valinu kominn en Gísli er með flest blokkstig í deildinni eða 36 talsins og er auk þess með flestar blokkir að meðaltali í hrinu. Strákarnir hafa nýverið unnið frækna 3-2 sigra á efstu tveimur liðum deildarinnar og verður spennandi að fylgjast með strákunum á næstunni.

Við óskum okkar mögnuðu fulltrúum innilega til hamingju með valið!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is