Jóna Margrét snýr aftur heim!

Jóna og Mateo endurnýja kynnin á komandi vetri en saman hafa þau hampað ófáum titlunum!
Jóna og Mateo endurnýja kynnin á komandi vetri en saman hafa þau hampað ófáum titlunum!

Blakdeild KA barst í dag ansi góður liðsstyrkur fyrir komandi vetur en Jóna Margrét Arnarsdóttir er mætt aftur heim eftir að hafa leikið tvö undanfarin tímabil með liði Sant Joan d'Alacant á Spáni.

Jóna sem verður 22 ára seinna á árinu er uppalin hjá KA og er gríðarlega öflugur uppspilari. Þrátt fyrir ungan aldur býr hún yfir mikilli reynslu en hún steig sín fyrstu skref í meistaraflokki KA aðeins 12 ára gömul. Hún vann sig fljótt inn í stærra og stærra hlutverk í liðinu og tók svo við sem aðaluppspilari KA liðsins í upphafi ársins 2020 er hún var enn aðeins 16 ára gömul.

Jóna sýndi og sannaði að hún var strax klár í þá ábyrgðarstöðu að leiða spil liðsins en KA varð Íslandsmeistari, Bikarmeistari og Deildarmeistari árið 2022 sem og árið 2023.

Hún var kjörin íþróttakona KA fyrir árið 2022 auk þess að vera valin besti leikmaður KA liðsins tímabilið 2022-2023. Hún gekk í kjölfarið í raðir Sant Joan d'Alacant á Spáni þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö ár en þar var hún í lykilhlutverki sem aðaluppspilari liðsins.

Þá hefur Jóna verið fastamaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár og þar áður í öllum yngrilandsliðum Íslands. Í sumar lék hún á Smáþjóðaleikunum sem haldnir voru í Andorra fyrir Íslands hönd í strandblaki ásamt Thelmu Dögg Grétarsdóttur.

Íslands-, Bikar- og Deildarmeistarar KA 2022-2023, Jóna annar af fyrirliðum KA liðsins með bikar í hönd fyrir miðju myndarinnar

Það er gríðarlega sterkt að fá Jónu aftur heim en KA liðið er handhafi allra stærstu titlanna og klárt að við ætlum okkur áfram stóra hluti og er heimkoma Jónu stór þáttur í áframhaldandi velgengni. Ekki nóg með að vera afar öflugur leikmaður að þá er hún öflugur félagsmaður sem þekkir félagið okkar í bak og fyrir en auk þess að leika með KA í vetur kemur hún inn sem verkefnastjóri blakdeildar.