KA Deildarmeistari í blaki kvenna

Blak
KA Deildarmeistari í blaki kvenna
Tvöfaldir meistarar! (mynd: Egill Bjarni)

KA hampaði Deildarmeistaratitlinum í blaki kvenna í dag eftir sannfærandi 3-0 sigur á HK í lokaumferð deildarinnar. Titillinn var í höfn fyrir leik en stelpurnar sem hafa verið magnaðar í vetur keyrðu áfram á fullri ferð og fóru með afar sanngjarnan sigur af hólmi.

Stelpurnar urðu Bikarmeistarar um síðustu helgi eftir stórkostlegan 3-2 sigur á Aftureldingu í oddahrinu og hafa nú tekið fyrstu tvo titla tímabilsins og það með því að tapa aðeins einum leik. Við óskum stelpunum innilega til hamingju með titlana tvo.

Það er þó skammt stórra högga á milli en strax á Skírdag, fimmtudaginn 14. apríl, hefja stelpurnar leik í úrslitakeppninni er þær taka á móti Þrótti Fjarðabyggð í undanúrslitunum. Vinna þarf tvo leiki til að komast í lokaúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn og ljóst að mikið er undir í KA-Heimilinu á fimmtudaginn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is