KA er tvöfaldur Meistari Meistaranna í blaki

Blak
KA er tvöfaldur Meistari Meistaranna í blaki
Frábær byrjun á vetrinum! (mynd: Ómar Eyjólfsson)

Það var heldur betur góð uppskera hjá blakliðum KA í gær er karla- og kvennalið félagsins börðust um titilinn Meistari Meistaranna. Bæði lið unnu alla þá titla sem í boði voru á síðustu leiktíð og ljóst að öll lið landsins hafa það markmið að leggja KA að velli í ár.

Leikirnir um Meistara Meistaranna fóru fram á Hvammstanga og voru það karlarnir sem riðu á vaðið. KA mætti þar Álftanesi en liðin mættust í Bikarúrslitunum á síðustu leiktíð. Leikurinn var frekar jafn og spennandi, KA leiddi til að byrja með og vann fyrstu tvær hrinurnar, 25-19 og 25-22.

Álftnesingar gáfust hinsvegar ekki upp og komust í 14-19 í þriðju hrinu, strákarnir komu til baka og löguðu stöðuna í 22-23 en það var ekki nóg og tapaðist hrinan 22-25. KA byrjaði fjórðu hrinu á að komast í 6-1 en misstu forskotið strax í stöðunni 8-8. Mikil spenna einkenndi fjórðu hrinu sem Álftanes vann á endanum 23-25 og knúði þar með fram oddahrinu.

Eftir svakalega baráttu í oddahrinunni var það KA sem stóð uppi sem sigurvegari, 16-14, og fyrsti titill vetrarins því kominn í hús.


Sigurgleðin var mikil hjá stelpunum að leik loknum! (mynd: Ómar Eyjólfsson)

Kvennamegin mættust KA og HK en liðin höfðu töluverða yfirburði í fyrra og börðust um alla titlana. Það var því spennandi að sjá hvernig liðin standa nú þegar tímabilið er að fara að hefjast. KA stelpurnar byrjuðu miklu betur og unnu fyrstu hrinuna 25-16.

En eins og svo oft áður þá varð meiri spenna í næstu hrinum og HK jafnaði metin í 1-1 með 22-25 sigri í annarri hrinu. Aftur tók KA liðið forystuna með 25-19 sigri í þriðju hrinu og staðan því orðin góð. Fjórða hrina var svo gríðarlega sveiflukennd, HK komst í 2-7, KA jafnaði í 8-8 og komst loks yfir í 12-8. En HK vann á endanum 22-25 sigur og knúði fram oddahrinu.

Þar reyndist okkar lið sterkara og vann á endanum 15-10 sigur og leikinn þar með 3-2. KA er því tvöfaldur Meistari Meistaranna og óskum við okkar liðum til hamingju með það!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is