KA lagði Aftureldingu öðru sinni

Blak
KA lagði Aftureldingu öðru sinni
Fjórir sigrar af fjórum hjá strákunum!

Afturelding tók á móti KA öðru sinni um helgina í Mizunodeild karla í blaki í dag. KA vann sannfærandi 0-3 sigur í gær og var ljóst að heimamenn ætluðu sér að gefa KA liðinu meiri mótstöðu í dag enda Afturelding með vel mannað lið.

KA liðið byrjaði leikinn betur og tók forystuna strax en heimamenn voru aldrei langt á eftir. Um miðja hrinu var staðan 13-14 og allt útlit fyrir jafnan og spennandi leik. Þá kom hinsvegar svakalegur 1-11 kafli hjá okkar liði sem kláraði hrinuna 14-25.

Næsta hrina fór svipuð af stað nema að góði kaflinn hjá KA liðinu kom fyrr þegar strákarnir breyttu stöðunni úr 7-10 yfir í 9-17. Á endanum vannst afar sannfærandi 15-25 sigur í hrinunni og staðan orðin 0-2.

Strákarnir voru að spila virkilega góðan leik og hafði maður á tilfinningunni að Mosfellingar ættu ekki roð í liðið út heila hrinu. Annað kom hinsvegar á daginn í þriðju hrinunni því heimamenn tóku fljótlega forystuna og létu hana aldrei af hendi. KA liðið fór að gera full mikið af mistökum og þrátt fyrir ágætar tilraunir tókst aldrei að brúa bilið og tapaðist hrinan 25-23.

Staðan því orðin 1-2 og smá pressa komin á liðið að klára leikinn í þeirri næstu til að sigla heim öllum þremur stigunum sem í boði voru. En það er flottur karakter hjá strákunum okkar og þeir tóku gott tak á fjórðu hrinunni þar sem þeir leiddu lengst af með 3-4 stigum og unnu 22-25 að lokum.

1-3 sigur staðreynd og annar sigur liðsins um helgina á sterku liði Aftureldingar staðreynd. Það er nokkuð ljóst að KA liðið er ógnarsterkt í vetur og yfirlýsingar um að stefna á alla titla vetrarins eru ekki út í bláinn. Þó má enn gera betur en það vantar aðeins upp á stöðugleikann en veturinn er aðeins nýhafinn og eðlilegt að enn séu menn að spila sig betur saman.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is