KA tekur á móti Hamri í kvöld

Blak

Það er heldur betur stórleikur í KA-Heimilinu í kvöld þegar KA tekur á móti Hamar í fyrsta leik krossspils efstu liðanna í úrvalsdeild karla í blaki klukkan 20:15. Efstu þrjú lið deildarinnar mætast innbyrðis í krossspilinu og fáum við því rosalega leiki í lok deildarinnar.

Strákarnir lögðu Hamar að velli í KA-Heimilinu fyrr í vetur og eru staðráðnir í að endurtaka leikinn. Hvetjum alla sem geta til að mæta en annars er leikurinn í beinni á YouTube rás KA-TV, áfram KA!

Í tilefni af því að skráning er í fullum gangi fyrir Valor-Öldungamót KA og Völsungs bjóðum við upp á fría KA-TV útsendingu frá leiknum en við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta og styðja strákana. En ef þið komist ekki er eina vitið að fylgjast vel með stórleik kvöldsins og klára skráninguna á Öldung í leiðinni!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is